Skilmálar
Afhending vöru
Jangmi.is sendir vörur gegn gjaldi með Drop á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er í boði afhending á afgreiðslustað Drop á landsbyggðinni. Öll afhending er án endurgjalds ef verslað er fyrir 15.000 kr.
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntun er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn samningur á milli þín og Jangmi.is.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.
Það tekur í flestum tilvikum 0-3 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru þó að jafnaði ekki sendar út um helgar.
Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Jangmi ehf., kt. 681024-0690, VSK númer: 155009
Verð
Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.
Greiðslumátar
Á Jangmi.is er boðið upp á að greiða með greiðslukortum frá Visa og Eurocard/Mastercard í gegnum örugga greiðslugátt frá Teya. Einnig er hægt að millifæra.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
- Varan skal vera ónotuð.
- Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
- Vara þarf að vera í upprunalegum umbúðum.
- Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
- 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar vara er afhent skráðum viðtakanda.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
Hafa samband
Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið jangmi@jangmi.is ef einhverjar spurningar vakna.